Tangabryggja 5

Verknúmer : BN058426

1091. fundur 2020
Tangabryggja 5, Fjölbýlishús - mhl.07
Sótt er um leyfi til þess að byggja 9 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum, mhl.07, á lóð nr. 5 við Tangabryggju.
Stærðir: 816.5 ferm., 2800.5 rúmm.
Erindi fylgir lóðablað 4.022.5 dags 22. maí 2019 og hæðablað útgáfa B dags. 23. október 2020 ásamt varmatapsútreikningum fyrir mhl.07, dags. 11. nóvember 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1090. fundur 2020
Tangabryggja 5, Fjölbýlishús - mhl.07
Sótt er um leyfi til þess að byggja 9 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum, mhl.07, á lóð nr. 5 við Tangabryggju.
Stærðir: 816.5 ferm., 2800.5 rúmm.
Erindi fylgir lóðablað 4.022.5 dags 22. maí 2019 og hæðablað útgáfa B dags. 23. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.