Skólavörðustígur 36

Verknúmer : BN058320

1087. fundur 2020
Skólavörðustígur 36, Þrílyft verslunar- og íbúðarhús
Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða staðsteypt hús með verslunarhúsnæði á jarðhæð og einni íbúð á annarri og þriðju hæð, á lóð nr. 36 við Skólavörðustíg.
Greinagerð aðalhönnuðar ódags. fylgir.
Stærð hús er a rými: 291,8 ferm., 934,8 rúmm.
B rými : 23,0 ferm., 30,0 rúmm.
Samtals: 314,8 ferm., 964,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Erindi BN057306 sem samþykkt var 21. apríl 2020 og byggingaleyfi gefið út verðið dregið til baka með þessu erindi. Erindi BN058242 sem er erindi í frestun verðið dregið til baka með þessu erindið.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.