Eddufell 2-8

Verknúmer : BN058311

1089. fundur 2020
Eddufell 2-8, 2 - Sólbaðsstofa 2.hæð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem innrétta sólbaðstofu með 5 ljósabekkjum á 2. hæð og setja handrið út á skyggni, á norðurhlið á húsi á lóð nr. 2 við Eddufell.
Erindi fylgir samþykki sumra eigenda fylgir á teikningu dags. 21. október 2020, tölvupóstur frá hönnuði til skýringar á vöntun á samþykki eins íbúðareiganda, dags 2. nóvember 2020 og tölvupóstur frá hönnuði vegna áður gerðra breytinga, dags. 2. nóvember 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1087. fundur 2020
Eddufell 2-8, 2 - Sólbaðsstofa 2.hæð
Sótt er um leyfi til að innrétta sólbaðstofu með 5 ljósabekkjum á 2. hæð og setja handrið út á skyggni, á norðurhlið á húsi á lóð nr. 2 við Eddufell.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.