Ármúli 9

Verknúmer : BN058270

1086. fundur 2020
Ármúli 9, Breytingar - BN055577
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055577 þannig að þakkanti og klæðningu er breytt sem og innra skipulagi í vinnurými og innréttað kaffieldhús í bakhúsi á lóð nr. 9 við Ármúla.
Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 25. september 2020 og yfirlit breytinga.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.