Köllunarklettsvegur 1

Verknúmer : BN058263

1086. fundur 2020
Köllunarklettsvegur 1, Breytingar - BN057821
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057821 þannig að innréttingu í starfsmannarými (0001) er breytt og bætt við inngangi og iðnaðarhurð á norðurhlið mhl. 07 á lóð nr. 1 við Köllunarklettsveg.
Erindi fylgir yfirlit yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.