Elliðabraut 12

Verknúmer : BN058221

1086. fundur 2020
Elliðabraut 12, Byggingarlýsing og brunavarnir uppfærðar sbr. BN054250
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054250, þannig að brunavarnir eru uppfærðar og klæðningum skipt út að hluta, þar sem var timburklæðning verður steinplötu- og álklæðning á húsi á lóð nr. 12 við Elliðabraut.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1085. fundur 2020
Elliðabraut 12, Byggingarlýsing og brunavarnir uppfærðar sbr. BN054250
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054250, þannig að brunavarnir eru uppfærðar og skipt er út að hluta klæðningu sem var timburklæðning fyrir steinplötuklæðningu og álklæðningu á húsi á lóð nr. 12 við Elliðabraut.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.