Bolholt 5-5a

Verknúmer : BN058100

1085. fundur 2020
Bolholt 5-5a, Geymslu breytt í spennarými
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rafstöðvarspenni í geymslu á norðvesturhorni og hurð á norðurhlið húss á lóð nr. 5 við Bolholt.
Erindi fylgir minnisblað um brunavarnir dags. 15. maí 2020.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1082. fundur 2020
Bolholt 5-5a, Geymslu breytt í spennarými
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rafstöðvarspenni í geymslu á norðvestur horni og hurð á norðurhlið húss á lóð nr. 5 við Bolholt.
Minnisblað um brunavarnir dags. 15. maí 2020.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.