Nýlendugata 34

Verknúmer : BN058082

1084. fundur 2020
Nýlendugata 34, Breyting á erindi BN055571
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055571, sem felst í að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6 og til að breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2020.
Erindi fylgir A3 sett með yfirliti yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1083. fundur 2020
Nýlendugata 34, Breyting á erindi BN055571
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055571, sem felst í að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6 og til að breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Erindi fylgir A3 sett með yfirliti yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Erindi er til umfjöllunar hjá skipulagsfulltrúa.


789. fundur 2020
Nýlendugata 34, Breyting á erindi BN055571
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. september 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN055571, sem felst í því að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6, breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu, samkvæmt uppdr. Arkþings síðast breytt dags. 17. ágúst 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju
Gjald kr. 11.200


Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

787. fundur 2020
Nýlendugata 34, Breyting á erindi BN055571
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN055571, sem felst í því að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6, breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu, samkvæmt uppdr. Arkþings síðast breytt dags. 17. ágúst 2020.
Gjald kr. 11.200


Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1081. fundur 2020
Nýlendugata 34, Breyting á erindi BN055571
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN055571, sem felst í því að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6, breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.