Hagamelur 34

Verknúmer : BN058068

1080. fundur 2020
Hagamelur 34, Dýpka svalir - handrið - breyting inni 3.hæð
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053719 þannig að svalir á suðurhlið verða endurnýjaðar, dýpkaðar um 20 cm. og handrið hækkuð, ásamt því að eldhús á 3. hæð verður óbreytt í fjölbýlishúsi á lóð nr. 34 við Hagamel.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í húsi nr. 34 og 36.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.