Fálkagata 18

Verknúmer : BN058030

1082. fundur 2020
Fálkagata 18, Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18 við Fálkagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.


787. fundur 2020
Fálkagata 18, Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18. við Fálkagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar. Gjald kr. 11.200

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.

786. fundur 2020
Fálkagata 18, Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18. við Fálkagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar. Gjald kr. 11.200

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1080. fundur 2020
Fálkagata 18, Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18. við Fálkagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.