Skógarhlíð 2

Verknúmer : BN057995

1078. fundur 2020
Skógarhlíð 2, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna nýja lóð Skógarhlíð 2 í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt sem er dagsettur 23.07.2020.
Ný lóð Skógarhlíð 2 (staðgr. 1.700.101, L230381).
Lagðir 562 m² til lóðarinnar frá óútvísaða landinu (L221448).
Lóðin Skógarhlíð 2 (staðgr. 1.700.101, L230381) verður 562 m².
Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í skipulags- og samgönguráði þann 06.05.2020, samþykkt í borgarráði þann 14.05.2020 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 15.07.2020.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.