Haukahlíð 5

Verknúmer : BN057854

1074. fundur 2020
Haukahlíð 5, Fálkahlíð 6 - mhl.06 - Skráningartafla leiðrétt sbr. BN054382
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054382, þannig að lagfærð er skráningartafla fyrir mhl. 06 þar sem þakrými er skráð sem sameign og tilheyrir ekki íbúðum 5. hæðar, rýmisnúmer svala 5. hæðar breytast og bílageymslur 0016 og 0017 í kjallara fá hlutdeild í sameign, í húsi á lóð nr. 5 við Haukahlíð.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.