Þorragata 1

Verknúmer : BN057848

1082. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


787. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júlí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu. Erindi var grenndarkynnt frá 31. júlí 2020 til og með 28. ágúst 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Sesselja Bjarnadóttir dags. 28. ágúst 2020. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm. Gjald kr. 11.200


Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. a- lið 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar nr. 1020/2019.

783. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júlí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm. Gjald kr. 11.200


Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hörpugötu 10, 12 og 14.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.


1077. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa í grenndarkynningu.
Vísað til uppdrátta nr. A101, A102, A103, A104, A105 dags. 15. júlí 2020.


1076. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.


1075. fundur 2020
Þorragata 1, Stækkun garðhúss
Sótt er um leyfi til að stækka garðstofu á vesturenda Sælukots á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Stækkun: 10,3 ferm., 32,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.