Eyjarslóð 9

Verknúmer : BN057847

1075. fundur 2020
Eyjarslóð 9, Ný iðnaðarhurð 01-0102.
Sótt er um leyfi til að setja iðnaðarhurð á suðausturhlið mhl.01 í húsi nr. 9 við Eyjarslóð.
Erindi fylgir greinagerð MÓ fjárfestingar hf, dags. 22. júní 2020 og samþykki húseigenda dags. júní 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.