Tómasarhagi 23

Verknúmer : BN057831

1074. fundur 2020
Tómasarhagi 23, Breyting á erindi BN056902 - innra skipulag.
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056902 þannig að innra skipulagi og aðkomu að baðherbergi á rishæð er breytt, einnig er svalahurð breytt í rennihurð, efni svalahandriðs breytt í gler og fallið frá gerð arins í íbúð 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 23 við Tómasarhaga.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.