Bústaðavegur 7A

Verknúmer : BN057688

1070. fundur 2020
Bústaðavegur 7A, Tilkynnt framkvæmd - Breyting á utanhúsklæðningu
Tilkynnt er um framkvæmd sem felst í að einangra og klæða að utan dælustöð vatnsveitu á lóð nr. 7A við Bústaðaveg.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 19. maí 2020.
Gjald kr. 11.200
Afgreitt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Senda skal byggingarfulltrúa stutta lýsingu með upplýsingum um lok framkvæmdar sem skal árituð af þeim aðila sem sá um framkvæmdina.