Láland 9-15

Verknúmer : BN057668

1072. fundur 2020
Láland 9-15, 15 - Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja yfir inngarð milli bílskúrs og íbúðarhúss, síkka glugga á suðurhlið, gera nýja glugga á norðurhlið, breyta innra skipulagi, og klæða hús að utan með læstri málmklæðningu og koma fyrir setlaug austan við einbýlishús nr. 15 á lóð nr. 9-15 við Láland.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 11. júní 2020.
Stækkun: 27,8 ferm., 90,3 rúmm.
Áður gerð stækkun stofu: 6 ferm.
Eftir stækkun: 293,7 ferm., 933,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1071. fundur 2020
Láland 9-15, 15 - Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja yfir inngarð milli bílskúrs og íbúðarhúss, síkka glugga á suðurhlið, breyta innra skipulagi, stækka stofu til vesturs og klæða hús að utan með læstri málmklæðningu, byggja áhaldaskúr og koma fyrir setlaug austan við einbýlishús nr. 15 á lóð nr. 9-15 við Láland.
Stækkun: 27,8 ferm., 90,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.


1069. fundur 2020
Láland 9-15, 15 - Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja yfir inngarð milli bílskúrs og íbúðarhúss, síkka glugga á suðurhlið, breyta innra skipulagi, stækka stofu til vesturs og klæða hús að utan með læstri málmklæðningu, byggja áhaldaskúr og koma fyrir setlaug austan við einbýlishús nr. 15 á lóð nr. 9-15 við Láland.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.