Arnarhlíð 2

Verknúmer : BN057640

1068. fundur 2020
Arnarhlíð 2, Breyting á BN048979 - Breytt eignarhald - skráningartöflur
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN048979 sem felst í breytingum á eignarhaldi og notkun djúpgáma í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Arnarhlíð.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 7. maí 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.