Lækjargata 1

Verknúmer : BN057629

1068. fundur 2020
Lækjargata 1, Niðurrif - mhl.03 bílskúr/geymsla.
Sótt er um leyfi til að rífa mhl.03, sem er skráður bílskúr/ geymsla með rýmis nr. 0101 og 0102, á lóð nr. 1 við Lækjargötu.
Erindi fylgir bréf frá Framkvæmdasýslu ríkisins dags. 7. maí 2020, tölvupóstur frá Minjastofnun Íslands dags. 14. apríl 2020.
Stærðir niðurrifs mhl. 03 er: 87,4 ferm., 254,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.