Lambhagavegur 10A

Verknúmer : BN057619

1067. fundur 2020
Lambhagavegur 10A, Ný dreifistöð fyrir raforku.
Sótt er um leyfi til að byggja dreifistöð fyrir raforku úr forsteyptum einingum, undirstöður eru forsteyptar gryfjur á þjöppuðum bögglabergspúða, á lóð nr. 10A við Lambhagaveg.
Stærð: 17,3 ferm., 65,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.