Stórhöfði 29-31

Verknúmer : BN057595

1088. fundur 2020
Stórhöfði 29-31, Breytingar innanhúss
Sótt er um leyfi um að fyrsta hæð verði skráð sem kjallari, fjölgun eigna verði úr einni í þrjár og breytingar gerðar innanhúss, auk þess sem sett er loftræsting ofan við anddyrishurð og litað gler í neðri glugga á norðurhlið í húsi á lóð nr. 29-31 við Stórhöfða.
Erindi fylgir bréf frá innanhúss daghönnuði dags. 2. október 2020 og minnisblað, þar sem helstu breytingar á húsnæðinu eru sýndar og breyttar brunavarnir, dags. 31. ágúst 2020.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1068. fundur 2020
Stórhöfði 29-31, Breytingar innanhúss
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054542, þannig að fyrsta hæð verður skráð sem kjallari, fjölgun eigna úr einu í þrjár og breytingar gerðar innanhúss í húsi á lóð nr. 29-31 við Stórhöfða.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.