Skipholt 3

Verknúmer : BN057588

1068. fundur 2020
Skipholt 3, Breytt notkun á rými
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun vörugeymslu í verslun og verkstæði, breyta innra skipulagi og bæta við snyrtingu í rými 0103 í fjölbýlishúsi, mhl.01, á lóð nr. 3 við Skipholt.
Erindi fylgir vottað, ódags. samþykki meðlóðarhafa ásamt yfirliti breytinga á uppdráttum samþykktum 10. júní 2014, umsögn burðarvirkishönnuðar dags 13. maí 2020 og yfirlit breytinga.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1066. fundur 2020
Skipholt 3, Breytt notkun á rými
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun vörugeymslu í verslun og verkstæði, breyta innra skipulagi og bæta við snyrtingu í rými 0103 í fjölbýlishúsi, mhl.01, á lóð nr. 3 við Skipholt.
Erindi fylgir vottað, ódags. samþykki meðlóðarhafa ásamt yfirliti breytinga á uppdráttum samþykktum 10. júní 2014.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.