Bugðulækur 6

Verknúmer : BN057576

1067. fundur 2020
Bugðulækur 6, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr upp að bílskúr sem fyrir er á lóðinni, úr plastkubbum með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan, með loftuðu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. apríl 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. maí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 1. maí 2020.
Stærð 36,3 ferm., 117,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.


772. fundur 2020
Bugðulækur 6, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. maí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr upp að bílskúr sem fyrir er á lóðinni, úr plastkubbum með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan, með loftuðu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk, samkvæmt uppdr. Verkfræðistofu suðurnesja dags. 26. nóvember 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. apríl 2020. Stærð 36,3 ferm., 117,8 rúmm. Gjald kr. 11.200

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020.

1066. fundur 2020
Bugðulækur 6, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr upp að bílskúr sem fyrir er á lóðinni, úr plastkubbum með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan, með loftuðu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. apríl 2020
Stærð 36,3 ferm., 117,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.