Gufunesvegur 4

Verknúmer : BN057563

1065. fundur 2020
Gufunesvegur 4, Fimm smáhýsi Br.á BN056810
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056810 þannig að lóðin er stækkuð um 45 metra til suðurs auk þess sem 30 ferm. smáhýsum úr krosslímdum timbureiningum (KLT), sem koma tilbúin og verða sett á bita sem felldir eru ofan í úrtak á reitum, er fjölgað úr fjórum í fimm, 4a, 4b, 4c, 4d og 4e, á lóð nr. 4 við Gufunesveg.
Erindi fylgir umboð dags. 10. janúar 2020 og minnisblað Verkís um brunahönnun dags. 20. apríl 2020.
Einnig tölvup. með umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2020 og leiðréttur umsóknartexti frá RG dags. 27. apríl 2020.
Stærðir:
4a: 33,1 ferm., 101,6 rúmm.
4b: 30,1 ferm., 94,5 rúmm.
4c: 30,1 ferm., 94,5 rúmm.
4d: 30,1 ferm., 94,5 rúmm.
4e: 30,1 ferm., 94,5 rúmm.
Samtals: 153,5 ferm., 468,7 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.