Fossaleynir 17A

Verknúmer : BN057541

1064. fundur 2020
Fossaleynir 17A, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun nýrrar 300 m² lóðar sem staðsett er norðan við lóðina Fossaleyni 17. Staðfang nýrrar lóðar er Fossaleynir 17A, landeignarnúmer L229980 og stað- greininúmer 2.468.002. Hnit- og málsett lóðamörk eru sýnd á meðfylgjandi mæliblaði, dags. 17.04.2020.
Land undir hina nýju lóð er fengið úr borgarlandi með landeignarnúmer L221447.
Mæliblað er unnið á grundvelli mæliblaðs dags. 19.03.1996 og deiliskipulagsbreytingar sem samþykkt var á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 08.03.2019 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 17.04.2018.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.