Úlfarsbraut 126

Verknúmer : BN057524

1066. fundur 2020
Úlfarsbraut 126, Öryggisgirðing
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055009, þannig að komið er fyrir öryggisgirðingu umhverfis keppnisvöll og grasæfingarsvæði sem verða 2,4 til 4,0 metra háar, á æfingarsvæði Fram, á lóð nr. 126 við Úlfarsbraut.
Erindi fylgir bréf aðalhönnuðar dags. 12. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1064. fundur 2020
Úlfarsbraut 126, Öryggisgirðing
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055009, þannig að komið er fyrir öryggisgirðingu umhverfis keppnisvöll og grasæfingarsvæði sem verða 2,4 til 4,0 metra háar, á æfingarsvæði Fram, á lóð nr. 126 við Úlfarsbraut.
Erindi fylgir bréf aðalhönnuðar dags. 12. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.