Hraunbær 153

Verknúmer : BN057516

1064. fundur 2020
Hraunbær 153, Mhl. 04 -Breyta BN055919 - skráningartafla
Sótt er um leyfi til þessa að breyta erindi BN055919 sem felst í því að skráning á brúttórúmmáli rýma 0404 og 0405 minnkar, rýmisnúmer sameigna á 2. og 3. hæð er lagfært, svölum 0218 og 0318 er bætt við, ásamt því að eignarhald og rýmisnúmer svala er leiðrétt í fjölbýlishúsi nr. 161-163, mhl.04 á lóð nr. 153 við Hraunbæ.
Minnkun A- rýma: 200.8 rúmm.
Stækkun B- rýma: 9.4 ferm., 25.8 rúmm.
Erindi fylgir A3 afrit af grunnmyndum og skráningartöflu samþykktum 14. maí 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.