Alþingisreitur

Verknúmer : BN057463

1064. fundur 2020
Alþingisreitur, Tjarnargata 9 - Br. BN056197 - Skrifstofuhús Alþingis - breyting á tengigangi og bílakjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi nr. BN056197 á þá leið að tengigangur á 2. hæð er færður niður í kjallara til að tengjast núverandi gangi við bílageymslu, bílageymsla er stækkuð samhliða þessu í húsi nr. 9 við Tjarnargötu á lóð Alþingisreits.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 20. mars 2020, bréf Eflu dags 20. mars 2020, brunahönnun Eflu útg. 05 dags. 18. mars 2020 og hljóðskýrsla Eflu dags. 29. mars 2019. Einnig brunhönnun Eflu dags. 14. apríl 2020 og bréf hönnuðar mótt. 21. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1063. fundur 2020
Alþingisreitur, Tjarnargata 9 - Br. BN056197 - Skrifstofuhús Alþingis - breyting á tengigangi og bílakjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi nr. BN056197 á þá leið að tengigangur á 2. hæð er færður niður í kjallara til að tengjast núverandi gangi við bílageymslu, bílageymsla er stækkuð samhliða þessu í húsi nr. 9 við Tjarnargötu á lóð Alþingisreits.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 20. mars 2020, bréf Eflu dags 20. mars 2020, brunahönnun Eflu útg. 05 dags. 18. mars 2020 og hljóðskýrsla Eflu dags. 29. mars 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.