Gylfaflöt 2

Verknúmer : BN057458

1064. fundur 2020
Gylfaflöt 2, Brunastigar - 0101, 0105, 0108, 0111, 0112 færa hringstiga 0104
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN054079 sem felst í því að setja upp beina brunastiga í rýmum 0101, 0105, 0108, 0111 og 0112 ásamt því að færa hringstiga í iðnaðarhúsi á lóð nr. 2 við Gylfaflöt.
Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla verkfræðistofunnar Örugg dags. 17. mars 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1063. fundur 2020
Gylfaflöt 2, Brunastigar - 0101, 0105, 0108, 0111, 0112 færa hringstiga 0104
Sótt er um leyfi til þess að setja upp beina brunastiga í rými 0101, 0105, 0108, 0111 og 0112 ásamt því að færa hringstiga í rými 0101 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 2 við Gylfaflöt.
Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla verkfræðistofunnar Örugg dags. 17. mars 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.