Tangabryggja 5

Verknúmer : BN057416

1070. fundur 2020
Tangabryggja 5, Fjölbýlishús - mhl.02
Sótt er um leyfi til þess að byggja 20 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum, mhl.02, á lóð nr. 5 við Tangabryggju.
Stærðir: 1557.3 ferm., 5216.9 rúmm.
Erindi fylgja varmatapsútreikningar mhl.02, dags. 12. mars 2020, lóðauppdráttur 4.022.5 dags 22. maí 2019 og ósamþykkt hæðablað i vinnslu hjá verkfræðistofunni Verkís dags. 30. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1060. fundur 2020
Tangabryggja 5, Fjölbýlishús - mhl.02
Sótt er um leyfi til þess að byggja 20 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum, mhl.02, á lóð nr. 5 við Tangabryggju.
Stærðir: 1557.3 ferm., 5216.9 rúmm.
Erindi fylgja varmtapsútreikningar mhl.02, dags. 12. mars 2020 og lóðauppdráttur 4.022.5 dags 22. maí 2019.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.