Tómasarhagi 42

Verknúmer : BN057409

1060. fundur 2020
Tómasarhagi 42, Sameining BN056101og BN057194 vegna gerðar eignaskiptasamnings.
Sótt er um leyfi til að sameina erindi BN056101og BN057194 vegna gerðar eignaskiptasamnings og áður gerðra breytinga á innra skipulagi á 3. hæð í húsi á lóð nr. 42 við Tómasarhaga.
Erindi fylgir samþykki eigenda ódags. og yfirlit yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.