Suðurlandsbraut 10

Verknúmer : BN057388

1064. fundur 2020
Suðurlandsbraut 10, Breytingar - bílastæði, færsla á skiltum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050317 þannig að bílastæðum er fækkað úr 203 í 202, gera hjólageymslu í bílakjallara, uppfæra skráningartöflu og koma fyrir skiltum á austurhlið húss nr. 8-10 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgja útskýringar á A4 blaði dags. 28. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1060. fundur 2020
Suðurlandsbraut 10, Breytingar - bílastæði, færsla á skiltum
Sótt er um leyfi til að fækka bílastæðum úr 203 í 202, koma fyrir hjólageymslu í bílakjallara, uppfæra skáningartöflu og koma fyrir skiltum á austurhlið húss nr. 8-10 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgja útskýringar á A4 blaði dags. 28. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.