Iðunnarbrunnur 11

Verknúmer : BN057356

1058. fundur 2020
Iðunnarbrunnur 11, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á stækkun lóðarinnar Iðunnarbrunns 11 og niðurfellingu lóðarinnar Friggjarbrunns 21 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 28.02.2020.
Lóðin Iðunnarbrunnur 11 (staðgr.nr. 2.693.408, landeignarnr. L206070) er 323 m².
Bætt 197 m² við lóðina frá Friggjarbrunni 21 (staðgr.nr. 2.693.505 landeignarnr. L205774).
Lóðin Iðunnarbrunnur 11 (staðgr.nr. 2.693.408, landeignarnr. L206070) verður 520 m².
Lóðin Friggjarbrunnur 21 (staðgr.nr. 2.693.505 landeignarnr. L205774) er 318 m².
Teknir 197 m² af lóðinni og bætt við Iðunnarbrunn 11 (staðgr.nr. 2.693.408, landeignarnr. L206070). Teknir 122 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið, L221447.
Leiðrétt um 1 m² vegna fermetrabrota.
Lóðin Friggjarbrunnur 21 (staðgr.nr. 2.693.505 landeignarnr. L205774) verður 0 m² og verður afskráð.
Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10.01.2020 auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 06.02.2020.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.