Úlfarsbraut 122-124

Verknúmer : BN057351

1058. fundur 2020
Úlfarsbraut 122-124, Reyndarteikning af eldhúsi og matsal Dalskóla
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050934 vegna öryggisúttektar þannig að fyrirkomulagi í eldhúsi og mötuneyti er breytt, breyting gerð á flóttaleiðum og bráðabirgðalokun sett á þann hluta 2. áfanga sem ekki er tekinn í notkun í Dalsskóla á lóð nr. 122-124 við Úlfarsbraut.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 26. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.