Melgerði 17

Verknúmer : BN057314

1060. fundur 2020
Melgerði 17, Kvistur á núverandi hús
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056127, þannig að fyrirhuguð yfirbygging svala yfir anddyri er dregin til baka, núverandi kvistir eru rifnir og í staðinn byggðir stærri kvistir, þakglugga verður bætt inn á teikningar og gluggi minnkaður á norðurgafli einbýlishúss á lóð nr. 17 við Melgerði.
Erindi fylgir ódagsett umsögn burðarvirkishönnuðar og bréf hönnuðar dags. 12. mars 2020.
Stækkun: 51.6 ferm., 132.0 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1059. fundur 2020
Melgerði 17, Kvistur á núverandi hús
Sótt er um leyfi til þess að byggja sólskýli og setja kvisti og þakglugga á einbýlishús á lóð nr. 17 við Melgerði.
Erindi fylgir ódagsett umsögn burðarvirkishönnuðar.
Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.