Austurbakki 2

Verknúmer : BN057278

1064. fundur 2020
Austurbakki 2, Breytingar á efri og neðri kjallara (BN056181) Austurstræti 2
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055542, þannig að breyting verður á innra skipulagi efri og neðri kjallara, brunamerkingum er breytt, bílastæðum er fjölgað um 9 og skráningartafla lagfærð fyrir skrifstofu- og verslunarhús á reit 6 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Minnkun: 5.0 ferm., 15.5 rúmm.
Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla Eflu útgáfa 04 dags. 10. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1063. fundur 2020
Austurbakki 2, Breytingar á efri og neðri kjallara (BN056181) Austurstræti 2
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055542, þannig að breyting verður á innra skipulagi efri og neðri kjallara, brunamerkingum er breytt, bílastæðum er fjölgað um 9 og skráningartafla lagfærð fyrir skrifstofu- og verslunarhús á reit 6 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Minnkun: 5.0 ferm., 15.5 rúmm.
Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla Eflu útgáfa 04 dags. 10. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.


1057. fundur 2020
Austurbakki 2, Breytingar á efri og neðri kjallara (BN056181) Austurstræti 2
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055541, þannig að breyting verður á innra skipulagi efri og neðri kjallara, brunamerkingum er breytt, bílastæðum er fjölgað um 9 og skráningartafla lagfærð fyrir skrifstofu-og verslunarhús á reit 6 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.