Langholtsvegur 192

Verknúmer : BN057228

1058. fundur 2020
Langholtsvegur 192, Setja dyr á útvegg
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að búið er að gera hurð úr baðherbergi út á lóð frá kjallaraíbúð húss á lóð nr. 192 við Langholtsveg.
Erindi fylgir ódagsett bréf frá eiganda íbúðar, afrit af reikningi vegna framkvæmdarinnar dags 23. október 2017 ásamt afriti af teikningum samþykktum 10. maí 2011.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.