Skólavörðustígur 45

Verknúmer : BN057219

1058. fundur 2020
Skólavörðustígur 45, Vegna athugasemda við úttekt 1. hæð og 2. hæð sbr. BN052151
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN052151, vegna lokaúttektar, þannig að settur er vaskur í veitingarsal, handrið á tröppur, þak framlengt yfir vörumóttöku og bakinngangi og göngupalli breytt í húsinu á lóð nr. 45 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir samþykki frá eiganda dags. 18. janúar 2020.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1055. fundur 2020
Skólavörðustígur 45, Vegna athugasemda við úttekt 1. hæð og 2. hæð sbr. BN052151
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN052151, vegna lokaúttektar, þannig að settur er vaskur í veitingarsal, handrið á tröppur, þak framlengt yfir vörumóttöku og bakinngang og göngupalli breytt í húsinu á lóð nr. 45 við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.