Laugavegur 162

Verknúmer : BN057211

1055. fundur 2020
Laugavegur 162, Hringstigi á milli hæða
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð, þannig að komið verður fyrir hringstiga milli 1. og 2. hæðar, anddyri verður rifið að vestanverðu, aðkoma að austara anddyri verður breytt og ný rennihurð gerð auk þess sem bílastæði fyrir hreyfihamlaða verður komið fyrir við anddyri hússins á lóð nr. 162 við Laugaveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 5. febrúar 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 20. janúar 2020.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1054. fundur 2020
Laugavegur 162, Hringstigi á milli hæða
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð, þannig að komið verður fyrir hringstiga milli 1. og 2. hæðar, anddyri verður rifið að vestanverðu, aðkoma að austara anddyri verður breytt og ný rennihurð gerð auk þess sem bílastæði fyrir hreyfihamlaða verður komið fyrir við anddyri hússins á lóð nr.162 við Laugaveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 20. janúar 2020 fylgir.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda eldvareftirlits.