Vallarstræti 4

Verknúmer : BN057206

1056. fundur 2020
Vallarstræti 4, Breytingar - BN047440
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047440 þannig að útihurð og kjallaragluggar eru færðir í upprunalegt horf, gluggum og klæðningu bakhúss breytt, þjónustulúgu vegna rýma milli húsa úr stigagangi 0006 bætt við og ný hurð sett í stigagang 4. hæðar vegna flóttaleiðar frá Thorvaldsensstræti 2, auk þess er innra skipulagi í rými 0002 í kjallara breytt í húsi á lóð nr. 4 við Vallarstræti.
Erindi fylgir afrit af tölvupósti frá Mannvirkjastofnun dags. 2. desember 2019 og afrit af teikningum samþykktum 16. júlí 2019 með yfirliti yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1054. fundur 2020
Vallarstræti 4, Breytingar - BN047440
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047440 þannig að útihurð og kjallaragluggar eru færðir í upprunalegt horf, gluggum og klæðningu bakhúss breytt, þjónustulúgu vegna rýma milli húsa úr stigagangi 0006 bætt við og ný hurð sett í stigagang 4. hæðar vegna flóttaleiðar frá Thorvaldsensstræti 2, auk þess er innra skipulagi í rými 0002 í kjallara breytt í húsi á lóð nr. 4 við Vallarstræti.
Erindi fylgir afrit af tölvupósti frá Mannvirkjastofnun dags. 2. desember 2019 og afrit af teikningum samþykktum 16. júlí 2019 með yfirliti yfir breytingar.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.