Hverfisgata 88

Verknúmer : BN057151

1056. fundur 2020
Hverfisgata 88, Fjölbýlishús - 5 íbúðir
Sótt er um leyfi fyrir nýbyggingu á þriggja og fjögurra hæða staðsteypt- og timburhús með alls 5 íbúðum að Hverfisgötu 88, áður Hverfisgata 90, og að breyta innra og ytra skipulagi á húsinu nr. 90 við Hverfisgötu, húsin verða sameinuð með stigagangi í miðju auk þess sem verslunarrými verður á fyrstu hæð og ein íbúð og fjórar íbúðir á 2. - 4. hæð og í kjallara verða geymslur, í hús á lóð nr. 88 við Hverfisgötu. Með þessu erindi eru BN055759 og BN055758 dregin til baka.
Stækkun á húsi: 290,8 ferm., 945,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1053. fundur 2020
Hverfisgata 88, Fjölbýlishús - 5 íbúðir
Sótt er um leyfi fyrir nýbyggingu á þriggja og fjögurra hæða hús með alls 5 íbúðum að Hverfisgötu 88, áður Hverfisgata 90, og að breyta innra og ytra skipulagi á húsinu nr. 90 við Hverfisgötu, húsin verða sameinuð með stigagangi í miðju auk þess sem verslunarrými verður á fyrstu hæð og ein íbúð og fjórar íbúðir á 2. - 4. hæð og í kjallara verða geymslur, í hús á lóð nr. 88 við Hverfisgötu. Með þessu erindi eru BN055759 og BN055758 dregin til baka.
Stækkun húsi : 312,3 ferm., 903,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.