Nauthólsvegur 83

Verknúmer : BN057147

1058. fundur 2020
Nauthólsvegur 83, Reyndarteikningar BN055095
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055095 þannig að brunahönnun er breytt, eignanúmer á 4. hæð leiðrétt, þaksvalir felldar út á 5. hæð og eignanúmerum breytt, fjöldi íbúða samkv. kröfum algildrar hönnunar fækkað úr 13 í 7, ennfremur eru breytingar á skráningartöflu og djúpgámar merktir með mhl. nr. á lóð nr. 83 við Nauthólsveg.
Erindi fylgir minnkuð afrit af teikningum frá hönnuði, nýr umsóknartexti mótt. 25.02.2020 og afrit af samþykktum teikningum með yfirliti yfir breytingar mótt. 02. mars 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1053. fundur 2020
Nauthólsvegur 83, Reyndarteikningar BN055095
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN0xxxx vegna reyndarteikninga á húsi nr. 83 við Nauthólsveg.
Erindi fylgir minnkaðar teikningar frá hönnuði.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.