Urðarbrunnur 33-35

Verknúmer : BN057090

1052. fundur 2020
Urðarbrunnur 33-35, 33 - Farsímaloftnet - SÉR STOFN
Sótt er um leyfi til að staðsetja farsímaloftnet fyrir Símann hf. á þaki húss nr. 33, á lóð nr. 33-35 við Urðarbrunn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. janúar 2020 fylgir erindi og samþykki eigenda dags. 17. janúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. janúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1051. fundur 2020
Urðarbrunnur 33-35, 33 - Farsímaloftnet - SÉR STOFN
Sótt er um leyfi til að staðsetja farsímaloftnet fyrir Símann hf. á þaki húss nr. 33, á lóð nr. 33-35 við Urðarbrunn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. janúar 2020 fylgir erindi. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. janúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.


757. fundur 2020
Urðarbrunnur 33-35, 33 - Farsímaloftnet - SÉR STOFN
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. janúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054489, staðsetja farsímaloftnet á þaki húss nr. 33, á lóð nr. 33-35 við Urðarbrunn, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 18. desember 2019.
Gjald kr. 11.200

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

1050. fundur 2020
Urðarbrunnur 33-35, 33 - Farsímaloftnet - SÉR STOFN
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054489, staðsetja farsímaloftnet á þaki húss nr. 33, á lóð nr. 33-35 við Urðarbrunn.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.