Fiskislóð 37C

Verknúmer : BN057025

1048. fundur 2019
Fiskislóð 37C, Reyndarteikningar sbr. BN054257
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054257 þannig að renni- og bómuhlið færist til, dýrageymsla breytist í óráðstafað rými og hundagerði rými 0115 fellur út í skráningartöflu af húsinu á lóð nr. 37C við Fiskislóð.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.