Austurbakki 2

Verknúmer : BN056980

1050. fundur 2020
Austurbakki 2, Breytingar - BN048688 - T4 - Mhl.09
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN048688, þannig að skrifstofa á 4. hæð í byggingu T4 mhl. 09, verður með lokuðum skrifstofurýmum og móttöku, tæknirými og ræstingu/snyrtingum bætt við inn í rýmið auk þess sem brunahönnun er uppfærð, í húsinu á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1048. fundur 2019
Austurbakki 2, Breytingar - BN048688 - T4 - Mhl.09
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN048688, þannig að skrifstofa á 4. hæð í byggingu T4 mhl. 09, verður með lokuðum skrifstofurýmum og móttöku, tæknirými og ræstingu/snyrtingum bætt við inn í rýmið auk þess sem brunahönnun er uppfærð, í húsinu á lóð nr. 2 við Austurbakki.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.