Lofnarbrunnur 14

Verknúmer : BN056970

1047. fundur 2019
Lofnarbrunnur 14, Breytingar - BN052686
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052686, þannig að innra skipulagi íbúða er breytt, breytt gluggasetning, óuppfullt rými breytt í geymslur og hæsti kóti húss er lækkaður úr K:77,35 í K:76,50, í húsi á lóð nr. 14 við Lofnarbrunn.
Stækkun vegna rýmis sem tekið er í notkun er: 23,3 ferm.
Rúmmálsminnkun vegna lækkunar salarhæðar er : 77,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.