Trilluvogur 1

Verknúmer : BN056956

1046. fundur 2019
Trilluvogur 1, Reyndarteikning v/lokaúttektar á stofnerindi BN054383
Sótt eru um leyfi til að breyta samþykktu erindi ,BN054383, þannig að bætt er við tveimur gluggum í stofu íbúðar 0119, innra skipulagi breytt í íbúðum 0207, 0501, 0502 og 0601, svalahandrið breytt úr stálrimlahandriði í gler/ál og komið fyrir gróðurkössum á séreignaflötum, í húsi á lóð nr. 1 við Trilluvog.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 13. mars. 2018
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.