Reynimelur 52

Verknúmer : BN056931

1055. fundur 2020
Reynimelur 52, Vinnustofa
Sótt er um leyfi til að byggja vinnustofu, mhl.02, sem yrði í eigu íbúðar 0201 í sambýlishúsi á lóð nr. 52 við Reynimel.
Stærðir: 30.0 ferm., 96.6 rúmm.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda húss og húsfélagsins Víðimel 49 undirritað á teikningu L101 og A101 dags. 12.11.2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1045. fundur 2019
Reynimelur 52, Vinnustofa
Sótt er um leyfi til að byggja vinnustofu, mhl.02, á lóð nr. 52 við Reynimel.
Stærðir: 30.0 ferm., 96.6 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.