Lambhagavegur 19

Verknúmer : BN056928

1047. fundur 2019
Lambhagavegur 19, Breytingar - brunamál - Br. á BN051044
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051044, þannig að innra skipulagi er breytt, komið er fyrir geymslu í rými 0101 milli mátlína F og G, vegg á mátlínu á milli afgreiðslu og afgreiðslu hlífarfatnaðar og breytt er brunavörnum í húsi á lóð nr. 19 við Lambhagaveg.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1045. fundur 2019
Lambhagavegur 19, Breytingar - brunamál - Br. á BN051044
Sótt er um leyfi til að breyta samþykktu erindi, BN051044, þannig að innra skipulagi er breytt, komið er fyrir geymslu í rými 0101 milli mátlína F og G, vegg á mátlínu á milli afgreiðslu og afgreiðslu hlífarfatnaðar og breytt er brunavörnum í húsi á lóð nr. 19 við Lambhagaveg.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.