Barónsstígur 32

Verknúmer : BN056921

1045. fundur 2019
Barónsstígur 32, Endursmíði á handriði á skábraut
Sótt er um leyfi til þess að endurnýja og breyta útliti handriðs meðfram skábraut framan við Austurbæjarskóla á lóð nr. 32 við Barónsstíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar í tölvupósti dags. 5. nóvember 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.